ÍSLENSKA
IKEA ÁBYRGÐ
Hve lengi gildir IKEA ábyrgðin?
Þessi ábyrgð gildir í fimm ár frá upphaflegum kaupdegi tækisins
í IKEA. Krafist er upphaflegu sölunótunnar sem sönnunar fyrir
kaupunum. Sé viðhald framkvæmt samkvæmt ábyrgðinni
framlengir það ekki ábyrgðartímabil tækisins.
Hver framkvæmir viðhaldið?
Þjónustufyrirtæki IKEA sér um viðhaldið í gegnum sína eigin
þjónustu eða viðurkennt þjónustunet samstarfsaðila.
Hvað fellur undir þessa ábyrgð?
Ábyrgðin nær til bilana í tækinu af völdum galla í byggingu
eða efni frá dagsetningu kaupanna í IKEA. Þessi ábyrgð gildir
aðeins um heimilisnotkun. Undantekningarnar eru tilgreindar
undir fyrirsögninni „Hvað fellur ekki undir þessa ábyrgð?" Innan
ábyrgðartímabilsins verður kostnaður bættur vegna lagfæringar
á galla, t.d. viðgerðir, varahlutir, vinna og ferðir, svo framarlega
sem tækið sé aðgengilegt til viðgerðar án sérstakra útgjalda.
Um þessi skilyrði gilda viðmiðunarreglur ESB (Nr. 99/44/EG) og
viðkomandi staðbundnar reglur. Hlutir sem skipt er út verða
eign IKEA.
Hvað mun IKEA gera til að laga vandamálið?
Þjónustuaðili sem tilgreindur er af IKEA mun skoða vöruna og
ákveða, að eigin undirlagi, hvort hún falli undir þessa ábyrgð.
Ef hún fellur undir ábyrgð þá mun þjónustuaðili IKEA eða
viðurkenndur samstarfsaðili, í gegnum eigin þjónustustarfsemi,
að eigin undirlagi, annað hvort gera við hina gölluðu vöru eða
skipta henni út með eins eða sambærilegri vöru.
Hvað fellur ekki undir þessa ábyrgð?
• Eðlilegt slit.
• Skemmdir vegna vísvitandi vanrækslu, skemmdir sem verða
vegna þess að ekki er farið eftir notkunarleiðbeiningum,
rangrar uppsetningar eða tengingar við ranga rafspennu,
skemmdir vegna efna- og rafefnahvarfa, ryðs, tæringar eða
vatnstjóns að með töldu, en ekki takmarkað við, skemmdir
vegna óhóflegs magns kalkútfellinga í vatnsinntakinu,
skemmdir vegna afbrigðilegra umhverfisskilyrða.
• Rekstrarvörur þ.m.t. rafhlöður og perur.
• Óvirkir og útlitslegir hlutir sem hafa ekki áhrif á venjulega
notkun tækisins, þ.m.t. allar rispur og hugsanlegur litamunur.
• Slysaskemmdir af völdum utanaðkomandi hluta eða efna og
hreinsunar eða losunar stíflu í síum, frárennslisbúnaði eða
sápuskúffum.
• Skemmdir á eftirfarandi hlutum: Keramikgleri, aukabúnaði,
körfum fyrir leirtau og hnífapör, fæðis- og frárennslispípum,
þéttingum, perum og peruhlífum, síum, hnöppum, hylkjum
og hluta af hylkjum. Nema sannað hafi verið að slíkar
skemmdir séu af völdum framleiðslugalla.
• Tilfelli þar sem enginn galli fannst við heimsókn tæknimanns.
• Viðgerðir sem ekki eru framkvæmdar af þeim
þjónustuaðilum sem við tilgreinum og/eða viðurkenndum
samstarfsaðilum með þjónustusamning eða þegar notaðir
eru varahlutir sem eru ekki af upprunalegri gerð.
• Viðgerðir vegna uppsetningar sem er gölluð eða ekki
samkvæmt lýsingu.
• Notkun tækisins í óheimilislegu umhverfi eins og notkun í
atvinnuskyni.
• Flutningsskemmdir. Ef viðskiptavinur flytur vöruna heim
til sín eða annars heimilisfangs þá er IKEA ekki ábyrgt fyrir
neinum skemmdur sem gætu orðið við flutning. Hinsvegar
ef IKEA afhendir vöruna til heimilisfangs viðskiptavinarins þá
verða skemmdir sem verða við þann flutning bættar af IKEA.
•
Kostnaður við að framkvæma upphaflega uppsetningu IKEA
tækisins.
• Hinsvegar ef þjónustuaðili tilgreindur af IKEA eða
viðurkenndur samstarfsaðili hans gerir við eða skiptir
út tæki samkvæmt þessari ábyrgð þá skal hinn tilgreindi
þjónustuaðili eða viðurkenndur samstarfsaðili hans
enduruppsetja viðgert tæki eða setja upp annað í staðinn ef
þarf.
• Þetta gildir ekki á Írlandi, viðskiptavinir skulu hafa samband
við tilgreinda IKEA viðhaldsþjónustu á staðnum eða
tilgreindan þjónustuaðila varðandi frekari upplýsingar.
(aðeins fyrir Bretland)
Þessar takmarkanir gilda ekki um gallalausa vinnu sem
framkvæmd er af hæfum sérfræðingi með upprunalegum
varahlutum okkar í þeim tilgangi að aðlaga tækið að tæknilegum
öryggiskröfum annars ESB lands.
Hvernig landslög gilda
IKEA ábyrgðin veitir sérstök lagaleg réttindi sem ná yfir eða eru
víðtækari en allar staðbundnar kröfur laga. Þessi skilyrði takmarka
hinsvegar ekki á neinn hátt réttindi neytandans sem lýst er í
staðbundinni löggjöf.
Gildissvæði
Fyrir tæki sem eru keypt í ESB landi og flutt til annars ESB lands þá
verður þjónustan veitt innan ramma ábyrgðarskilyrðanna sem eiga
við í nýja landinu.
Skylda til að framkvæma þjónustu innan ramma ábyrgðarinnar
er aðeins til staðar ef tækið er í samræmi við og uppsett
samkvæmt:
• tækniforskrift sem gildir í landinu þar sem ábyrgðarkrafan er
gerð;
• samsetningarleiðbeiningum og öryggisupplýsingum
notendahandbókar.
Tilgreind VIÐHALDSÞJÓNUSTA fyrir IKEA tæki
Vinsamlegast hikið ekki við að hafa samband við viðurkennda
þjónustumiðstöð sem IKEA tilgreinir til að:
• gera þjónustubeiðni samkvæmt þessari ábyrgð;
• biðja um skýringar vegna uppsetningar IKEA tækisins í þar til
gerða IKEA eldhúsinnréttingu;
• biðja um skýringar á virkni IKEA tækja.
Vinsamlegast lesið vandlega leiðbeiningar um samsetningu og/
eða notendahandbók áður en haft er samband við okkur svo
tryggt sé að við veitum bestu þjónustu.
Hvernig ná skal í okkur þegar vantar þjónustu
má finna á síðustu síðu hand-
Til að geta veitt fljótari þjónustu mælum við með notkun
sérstaks símanúmers sem skráð er á þessa handbók.
Notið alltaf númerin sem skráð eru í bæklingi viðkoman-
di tækis sem aðstoðar er þörf vegna. Vinsamlegast vísið
alltaf til IKEA vörunúmersins (8 tölustafa kóði) og 12 tölu-
stafa þjónustunúmersins sem eru til staðar á merkiplötu
tækisins.
GEYMIÐ ÞESSA SÖLUNÓTU!
Hún er sönnunin fyrir kaupunum og er nauðsynleg til þess
að ábyrgðin gildi. Á sölunótunni kemur einnig fram IKEA nafn
og vörunúmer (8 tölustafa kóði) fyrir hvert tæki sem þú hefur
keypt.
Þarft þú aukalega hjálp?
Fyrir viðbótarspurningar sem tengjast ekki viðhaldsþjónustu
tækisins skal hafa samband við þjónustuver næstu IKEA verslunar.
Við mælum með því að upplýsingarnar með tækinu séu lesnar
vandlega áður en þú hefur samband við okkur.
Varahlutir verða fáanlegir í tímabil sem nær annaðhvort 7 eða 10
árum, samkvæmt tilteknum reglugerðarkröfum.
Varahlutina má finna á:
https://parts-selfservice.whirlpool.com/en/landing
Heildarlista yfir tilkvadda
viðhaldsþjónustuaðila IKEA
bókarinnar ásamt viðeigandi
símanúmerum.
195