Descargar Imprimir esta página

IKEA RAGLANDA Manual Del Usuario página 194

Ocultar thumbs Ver también para RAGLANDA:
ÍSLENSKA
Uppsetning
ATHUGIÐ: Ef einhvern tíma þarf að flytja tækið skal hafa það í
uppréttri stöðu; ef það er algjörlega nauðsynlegt má halla henni
á bakið.
Vatnsinntakið tengt
Tenging vatnsinntaksins fyrir uppsetningu ætti aðeins að vera
framkvæmd af hæfum tæknimanni.
Slöngur vatnsinntaks og -úttaks gætu verið staðsettar til hægri
eða vinstri til að ná sem bestri uppsetningu.
Verið viss um að uppþvottavélin beygi hvorki né kremji
slöngurnar.
Tenging vatnsinntaksslöngunnar
• Látið vatnið renna þar til hún er alveg hrein.
• Skrúfið inntaksslönguna þétt í stað og kveikið á krananum.
Ef inntaksslangan er ekki nógu löng skal hafa samband við
sérhærða verslun eða viðurkenndan tæknimann.
Vatnsþrýstingurinn verður að vera innan gildanna sem
gefin eru til kynna í töflunni yfir tæknileg gögn - annars gæti
uppþvottavélin ekki virkað rétt.
Verið viss um að slangan sé ekki beygð eða undir þrýstingi.
Upplýsingar fyrir tengingu vatnsinntaksslöngu:
Vatnsinntak
Vatnsinntak
Afl vatnsþrýstings
Tenging úttaksslöngunnar
Tengið úttaksslönguna við frárennslisrör með að þvermál að
lágmarki 2 cm A.
Tenging úttaksslöngu verður að vera í hæð sem er á bilinu frá 40
til 80 cm frá gólfinu eða yfirborðinu sem uppþvottavélin hvílir á.
Áður en vatnsúttaksslangan er tengd við frárennslisrör vasksins
skal fjarlægja plasttappann B.
FLÓÐAVÖRN
Flóðavörn. Til að tryggja að ekki verði flóð er uppþvottavélin búin
sérstöku kerfi sem hindrar vatnsinntakið í tilfelli fráviks eða leka innan
úr tækinu.
Sumar uppþvottavélar eru einnig búnar hinum aukalega
öryggisbúnaði New Aqua Stop, sem tryggir flóðavörn jafnvel í
þeim tilfellum sem gat kemur á slöngu.
Undir engum kringumstæðum ætti að skera vatnsinntaksslönguna
því hún inniheldur spennuhafa rafhluti.
kalt eða heitt (hám. 60°C)
3/4"
0,05 ÷ 1 MPa (0,5 ÷ 10 bör)
7,25 – 145 psi
MAX 80 cm
MIN 40 cm
Raftenging
VIÐVÖRUN: Undir engum kringumstæðum ætti að skera
vatnsinntaksslönguna því hún inniheldur spennuhafa
rafhluti.
Áður en klóin er sett í rafmagnsinnstunguna skal ganga úr
skugga um að:
• Innstungan sé jarðtengd og í samræmi við núgildandi reglur;
• Innstungan
geti þolað hámarksálag tækisins eins og sýnt er
á merkiplötunni innan á hurðinni (sjá VÖRULÝSINGU).
• Rafveituspennan falli innan þeirra marka sem gefin eru til
kynna á merkiplötunni innan í hurðinni.
• Innstungan sé samhæf við kló tækisins.
Ef þetta er ekki tilfellið skal einungis biðja heimilaðan þjónustu-
aðila að skipta um vottuðu rafmagnssnúruna með réttri kló sem
á við þetta tæki (sjá ÞJÓNUSTA OG VIÐHALD). Ekki nota framlen-
gingarsnúrur eða fjöltengi eða ekki vottaðar rafmagnssnúrur
með tenglum. Rafmagnssnúran og rafmagnsinnstungan ættu
að vera auðveldlega aðgengilegar eftir að tækið hefur verið sett
upp.
Snúran á ekki að vera beygð eða undir þrýstingi.
Ef rafmagnssnúran er skemmd skal láta skipta henni út hjá
framleiðandanum eða viðurkenndri viðhaldstækniþjónustu hans
til að forðast alla hættu.
Fyrirtækið er ekki ábyrgt fyrir neinum atvikum sem verða, ef
þessum reglum hefur ekki verið fylgt.
Staðsetning og hæðarstilling
1. Staðsetjið uppþvottavélina á láréttu og sterku gólfi. Ef gólfið er
ójafnt þá er hægt að stilla framfætur tækisins þar til það nær
láréttri stöðu. Ef tækið er rétt hæðarstillt verður það stöðugara
og mun ólíklegra til að valda titringi eða hávaða meðan það er
í gangi.
2. Áður en uppþvottavélin er felld inn í skotið skal festa
gegnsæja límborðann undir viðarhilluna til að verja hana fyrir
rakaþéttingu sem getur myndast.
3. Setjið uppþvottavélina þannig að hliðar hennar eða afturþil
séu í snertingu við aðliggjandi skápa eða vegginn. Einnig er
hægt að setja þetta tæki undir einfalt vinnuborð.
4. Til að stilla hæð afturfótar skal snúa rauða sexhyrnda
skrúfhólkinum á neðri miðhluta framan á uppþvottavélinni
með 8 mm sexkantlykli. Snúið skrúflyklinum réttsælis til að
hækka hæðina og rangsælis til að lækka hana.
STÆRÐIR OG RÝMI:
Breidd
Hæð
Dýpt
Rúmtak
194
598 mm
820 mm
555 mm
14 hefðbundnir borðbúnaðir
loading