ÍSLENSKA
börnum frá uppsetningarstaðnum. Þegar
umbúðir hafa verið teknar utan af tækinu
skal ganga úr skugga um að það hafi ekki
skemmst við flutningana.
Ef vandamál koma upp skal hafa samband
við næsta þjónustuaðila.
Eftir uppsetningu skal geyma
pökkunarúrgang (plast, frauðplast o.s.frv.)
fjarri börnum - hætta á köfnun.
Nauðsynlegt er að aftengja
tækið frá rafveitu áður nokkrar
uppsetningaraðgerðir eru framkvæmdar
- hætta á raflosti. Við uppsetningu
skal tryggja að tækið skemmi ekki
rafmagnssnúrur - hætta á eldsvoða eða
raflosti. Ekki gangsetja tækið fyrr en
uppsetningu er lokið.
Notið aðeins nýtt sett af slöngum þegar
uppþvottavélin er tengd við vatnsinntakið.
Ekki skal nota gamla slöngusettið.
Allar slöngur verða að vera örugglega
klemmdar svo að þær losni ekki við
notkun.
Fara skal að öllum reglum viðkomandi
vatnsyfirvalda.
Vatnsinntaksþrýstingur 0,05 - 1,0 MPa.
Setja skal tækið upp við vegg eða hafa
það innbyggt í innréttingu til að takmarka
aðgang að afturhlið þess.
Ef uppþvottavélin er með loftræstiop í
grunninum má ekki vera teppi sem hindrar
opin.
Ef uppþvottavélin er sett upp á enda
raðar af einingum þannig að hliðarplatan
verði aðgengileg verður svæðið með
lömunum að vera varið svo ekki sé hætta á
meiðslum.
Hitastig inntaksvatnsins fer eftir
gerð uppþvottavélarinnar. Ef uppsett
inntaksslanga er merkt „25°C Max" er
hámarksleyfilegt hitastig vatns 25°C. Fyrir
allar aðrar gerðir er hámarksleyfilegt
hitastig vatns 60°C. Skerið ekki slöngur og
í tilfelli tækja sem eru búin lekavarnarkerfi
má ekki dýfa plasthólknum sem er utan
um inntaksslönguna í vatn. Ef slöngurnar
eru ekki nógu langar skal hafa samband
við seljanda. Verið viss um að inntaks- og
frárennslisslöngurnar séu ekki beyglaðar
né kramdar. Athugið hvort vatnsinntakið
og frárennslisslöngur leki áður en tækið
er notað í fyrsta sinn. Tryggið að fæturnir
fjórir séu stöðugir og hvíli á gólfinu, stillið
þá eftir þörfum, og athugið með hallamáli
að uppþvottavélin sé fullkomlega lárétt.
Notið tækið aðeins þegar hlífarnar
sem sýndar eru á skýringarmynd 19 í
samsetningarleiðbeiningunum hafa verið
rétt settar saman - hætta á meiðslum.
VIÐVARANIR VEGNA RAFMAGNS
Merkispjaldið er á brún hurðar
uppþvottavélarinnar (sést þegar hurðin er
opin).
Nauðsynlegt er að hægt sé að aftengja
tækið frá rafmagni með því að taka það
úr sambandi ef innstungan er aðgengileg
eða með fjölskautarofa sem settur er upp
fyrir framan innstunguna í samræmi við
tengingarreglur. Jarðtengja skal tækið
í samræmi við landsbundna staðla um
raföryggi.
Notið ekki framlengingartengi, fjöltengi
eða millistykki. Eftir að tækið hefur verið
sett upp á notandinn ekki að komast að
rafrænum íhlutum tækisins. Ekki nota
tækið þegar þú ert blautur eða berfættur.
Notið ekki ofninn ef rafmagnssnúran eða
innstungan er skemmd, ef hann starfar
ekki rétt eða ef hann hefur skemmst eða
dottið.
Ef rafmagnssnúran er skemmd
verður að skipta henni út með eins
rafmagnssnúru frá framleiðandanum,
þjónustufulltrúa hans eða sambærilega
hæfum aðilum - hætta á raflosti.
Ef áfesta klóin passar ekki í innstunguna
skal hafa samband við hæfan tæknimann.
Togið ekki í rafmagnssnúruna. Ekki skal
láta rafsnúru eða rafmagnskló liggja í
vatni.
Halda skal rafsnúrunni frá heitu yfirborði.
HREINSUN OG VIÐHALD
VIÐVÖRUN: Tryggið að slökkt sé á
tækinu og að það hafi verið tekið úr
samband frá aflveitu áður en viðhald
er framkvæmt. Til að forðast hættu á
líkamstjóni skal nota hlífðarhanska (hætta
á að skerast) og öryggisskó (hætta á að
merjast); verið viss um að sé meðhöndlað
af tveimur einstaklingum (minna álag);
notið aldrei gufuhreinsibúnað (hætta á
rafstuði).
Viðgerðir ófaglærðra án heimildar
framleiðanda geta leitt til áhættu fyrir
heilsufar og öryggi, sem framleiðandinn
er ekki ábyrgur fyrir. Allir gallar eða
skemmdir af völdum viðgerða eða viðhalds
sem er framkvæmt af ófaglærðum aðilum
falla ekki undir ábyrgðina, en skilmálar
hennar eru útlistaðir í skjalinu sem fylgdi
einingunni.
183