ÍSLENSKA
Neðri grind
Fyrir potta, lok, diska, salatskálar, hnífapör o.s.frv. Stóra diska
og lok er tilvalið að setja til hliðanna til að forðast að trufla
úðunararminn.
(dæmi um hleðslu fyrir neðri grind)
Hnífaparakarfa
Karfan er útbúin með toppgrind til að hægt sé að hagræða
hnífapörum betur. Aðeins ætti að staðsetja hnífaparakörfuna
fremst í neðri grindinni.
Hnífar og önnur áhöld með beittar brúnir verður að setja í
hnífaparakörfuna með oddinn niður á við eða það verður að
setja þau lárétt í fellispjöldin á efri grindinni.
Dagleg notkun
1. VATNSTENGING ATHUGUÐ
Athugið að uppþvottavélin sé tengd við vatnsinntakið og að
skrúfað sé frá krananum.
2. KVEIKT Á UPPÞVOTTAVÉLINNI
Opnið hurðina og ýtið á „Kveikja/slökkva" hnappinn.
3. HLAÐIÐ Í GRINDURNAR (sjá HLAÐIÐ Í GRINDURNAR)
4. FYLLT Á ÞVOTTAEFNISSKAMMTARANN
(sjá FYLLT Á ÞVOTTAEFNISSKAMMTARANN).
5. VELJA ÞVOTTAKERFI OG SÉRSTILLA LOTUNA
Veljið þvottakerfi sem á best við gerð leirtausins og magn
óhreininda (sjá LÝSING Á ÞVOTTAKERFUM) með því að ýta á
hnappinn
.
6. RÆSA
Ræsið þvottalotuna með því að ýta á RÆSA/Hléhnappinn
(LED-ljós lýsir) og lokið hurðinni innan 4 sek. Þegar þvottak-
erfið fer í gang þá heyrist píp einu sinni. Ef hurðinni var ekki
lokað innan 4 sek. heyrist viðvörunarhljóð. Í þessu tilfelli skal
opna hurðina, ýta á RÆSA/Hlé hnappinn og loka hurðinni
aftur innan 4 sek.
Óviðeigandi leirtau
• Leirtau og hnífapör úr tré.
• Fíngerð skreytt glös, handverkslist og fornt leirtau. Skreytingar
þeirra hafa ekki nægilegt viðnám.
• Hlutar úr gerviefnum sem þola ekki hátt hitastig.
• Leirtau úr kopar og tini.
• Leirtau sem er óhreint af ösku, vaxi, smurfeiti eða bleki.
Litir glasaskreytinga og ál-/silfurhluta geta breyst og dofnað við það
að fara í gegnum þvottaferlið. Sumar tegundir glasa (t.d. hlutir úr
kristal) geta einnig orðið mattar eftir nokkurn fjölda þvottaferla.
Skemmdir á glösum og leirtaui
• Notið aðeins glös og postulín þegar framleiðandinn hefur
ábyrgst að það þoli þvott í uppþvottavél.
• Notið milt þvottaefni sem hentar leirtaui
• Takið glös og leirtau úr uppþvottavélinni um leið og þvottalo-
tunni er lokið.
Hygiene (Hreinlæti)
Keyrið uppþvottakerfi með háu hitastigi a.m.k. einu sinni í mánuði
til að forðast að komi vond lykt og botnfall sem getur safnast í
uppþvottavélina. Notið teskeið af þvottaefni og keyrið kerfið með
vélina tóma til að hreinsa hana.
RÁÐLEGGINGAR UM ORKUSPARNAÐ
• Þegar uppþvottavél heimilisins er notuð samkvæmt leiðbe-
iningum framleiðandans þá eyðir það venjulega minni orku
og vatni að þvo borðbúnað í uppþvottavél en ef hann er
handþveginn.
• Til að notkun uppþvottavélarinnar sé sem hagkvæmust er
ráðlagt að hefja þvottalotuna þegar uppþvottavélin er
fullhlaðin. Það stuðlar að orku- og vatnssparnaði að hlaða í
uppþvottavél heimilisins að því marki sem framleiðandinn gefur
upp. Upplýsingar um rétta hleðslu borðbúnaðar er hægt að
finna í kaflanum um hleðslu. Ef sett er á rangan hátt í uppþvot-
tavélina eða of mikið sett í hana getur það aukið auðlindanoktun
(eins og vatns, orku og tíma, auk þess sem hávaðinn verður
meiri) og árangur þvotts og þurrkunar verður minni.
• Handvirk forhreinsun borðbúnaðar leiðir til aukinnar vatns og
orkunotkunar og er ekki mælt með henni.
7. ENDIR ÞVOTTALOTU
Endir þvottalotunnar er gefinn til kynna með pípi og gaumljós
valins þvottakerfis blikkar á skjánum. Opnið hurðina og slök-
kvið á tækinu með því að ýta á hnappinn „Kveikt/slökkt".
Bíðið í nokkrar mínútur áður en leirtauið er tekið úr - til að
forðast brunasár. Takið úr grindunum með því að byrja á
þeirri neðri.
Til að lágmarka rafmagnseyðslu mun vélin slökkva á sér
sjálfkrafa eftir ákveðið langan tíma án notkunar. Ef leirtauið
er aðeins smávegis óhreint eða hefur verið hreinsað með
vatni áður en það var sett í uppþvottavélina, þá skal minnka
til samræmis magn þvottaefnis sem notað er.
172