ÍSLENSKA
Innihald
Öryggisupplýsingar
Lýsing raftækisins
Stjórnborð
Fyrsta notkun
Raðað í grindurnar
Dagleg notkun
Tafla yfir þvottakerfi
Öryggisupplýsingar
Áður en tækið er notað skaltu lesa þessar
öryggisleiðbeiningar. Haltu þeim nálægt til
að vísa í síðar.
Þessar leiðbeiningar og heimilistækið
sjálft veita mikilvægar öryggisviðvaranir,
sem ávallt ber að virða. Framleiðandinn
afsalar sér allri ábyrgð ef þessum
öryggisleiðbeiningum er ekki fylgt, vegna
óviðeigandi notkunar á tækinu eða rangrar
stillingar stjórntækja.
Mjög ungum börnum (0-3 ára) ætti
að halda frá tækinu. Halda skal ungum
börnum (3-8 ára) fjarri tækinu nema þau
séu undir stöðugu eftirliti. Börn frá 8
ára og eldri og einstaklingar með skerta
líkamlega, skynræna eða andlega getu eða
skort á reynslu og þekkingu mega aðeins
nota þetta tæki ef þau eru undir eftirliti
eða hafa fengið leiðbeiningar um örugga
notkun og skilja hættuna sem því fylgir..
Börn mega ekki leika sér með
heimilistækið.
Þrif og notendaviðhald má ekki fara fram
af börnum án eftirlits.
LEYFILEG NOTKUN
VARÚÐ: tækinu er ekki ætlað að
vera notað með aðstoð utanaðkomandi
ræsingarbúnaðar, s.s. tímastillis eða
aðgreinds fjarstýrðs stjórnkerfis.
Þetta tæki er ætlað til notkunar
á heimilum og á álíka stöðum, s.s.:
starfsmannaeldhús í verslunum,
skrifstofum og öðru vinnuumhverfi;
bóndabæjum; af viðskiptavinum á
hótelum, mótelum, gistiheimilum og öðru
íbúðaumhverfi.
Tækið er ekki til notkunar í atvinnuskyni.
Ekki nota tækið utandyra.
Hámarksfjöldi borðbúnaða er sýndur á
vörugagnablaðinu.
Ekki ætti að skilja hurðina eftir opna -
hætta á hrösun. Opin hurð tækisins getur
aðeins borið þunga hlaðinnar grindar sem
toguð hefur verið út. Setjið ekki hluti á
167
Hreinsun og viðhald
169
Hvað á að gera ef...
169
Þjónusta og viðhald
170
Tæknilegar upplýsingar
171
Umhverfisvandamál
172
Uppsetning
173
IKEA ÁBYRGÐ
hurðina, né sitjið eða standið á henni.
VIÐVÖRUN: Þvottaefni fyrir
uppþvottavélar eru mjög alkalísk. Þau eru
mjög hættuleg ef þau eru gleypt. Forðist
snertingu við húð og augu og haldið
börnum frá uppþvottavélinni þegar hurðin
er opin. Athugið að hólfið fyrir þvottaefnið
sé tómt þegar þvottalotunni er lokið.
VIÐVÖRUN: Hnífar og önnur áhöld með
beittum oddum skal hlaða í körfuna með
oddinn niður eða setja í lárétta stöðu -
hætta á að skerast.
Geymið sprengifim eða eldfim efni (t.d.
eldsneyti eða úðabrúsa) inni í eða nærri
tækinu vegna eldhættu.
Aðeins má nota tækið til að þvo leirtau
heimilis í samræmi við leiðbeiningar
þessarar handbókar. Vatnið í tækinu er
ekki drykkjarhæft. Notið aðeins þvottaefni
og íblendiskolefni sem gerð eru fyrir
sjálfvirkar uppþvottavélar. Þegar bætt
er við efni til að mýkja vatnið (salt) skal
tafarlaust keyra eina lotu með vélina tóma
til að forðast að innri hlutar verði fyrir
tæringarskemmdum.
Geymið þvottaefnið, skolefnið og saltið
þar sem börn ná ekki til. Slökkvið á
vatnsinntakinu og takið úr sambandi við
rafmagn áður en þjónusta og viðhald fer
fram.
Aftengið vatnið og rafmagnið ef einhver
bilun verður.
UPPSETNING
Tækið verður að vera meðhöndlað og
uppsett af tveim eða fleiri persónum -
hætta á meiðslum. Notaðu hlífðarhanska
til að taka upp og setja upp - hætta á
skurði.
Aðeins hæfur tæknimaður má sjá um
uppsetningu tækisins, þ.m.t. vatnsinntak
(ef til staðar), raftengingar og viðgerðir.
Gerið ekki við eða skiptið út neinum
hluta tækisins nema það sé sérstaklega
tekið fram í notendahandbókinni. Haldið
167
174
175
176
177
177
178
179